Það sem gerist á nóttunni

Ljóstýra liggur frá tungli,

lævísir kettir breima.

Róni rótar í rusli,

ræðumanninn fer að dreyma.

Einleik engisspretta hefur,

eldflugan situr stillt.

Einhleypur einbúi sefur,

elgurinn öskrar villt.

 

Haukur Björnsson, febrúar 2008


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband